Venulegt útlit

SS Verktaki

Picture 20.png

Vefur Sveinbjörns Sigurðssonar HF verktaki.is ver nýverið fluttur í Fuel CMS og útlit vefsins og virkni tekin í gegn.

Meðal nýjunga á vefnum má nefna verkefnavef sem var sérhannaður að þeirra þörfum þar sem undirverktakar og viðskiptavinir geta með auðveldu móti nálgast gögn s.s. teikningar ofl. í gegnum læst svæði.

Starfsemi félagsins hófst árið 1942 þegar Sveinbjörn Sigurðsson hóf rekstur í eigin nafni. Í fyrstu byggði hann eingöngu íbúðarhús en með árunum urðu verkefnin fjölbreyttari og í dag teljast til fyrri verka félagsins sundlaugar, brýr, einbýlishús, fjölbýlishús, leikskólar, menntastofnanir, atvinnu- og verslunarhúsnæði svo eitthvað sé nefnt.

Árið 1990 hætti Sveinbjörn Sigurðsson sjálfur afskiptum af rekstrinum og tóku synir hans við, þeir Árni, Sigurður og Sveinbjörn. Félagið hefur haldið áfram að vaxa og dafna með árunum og nú starfa á vegum þess u.þ.b. 100 starfsmenn auk undirverktaka. Velta félagsins árið 2006 var 2,5 milljarðar.

Hægt er að nálgast vef þeirra á www.verktaki.is

 




Preload