Grafísk hönnun
Tikktakk hugbúnaðir býður uppá alhliða grafíska hönnun, hvort sem um ræðir fyrir ljósvaka- eða prentmiðla, vefhönnun, firmarmerki eða vörumerki.
- Bætt markaðsímynd
Ein verðmætasta eign fyrirtækis er ímynd þess og ásjón. Það getur tekið langan tíma að byggja upp sterka og traustvekjandi markaðsímynd. Góð sjónræn hönnun fyrirtækisins getur flýtt því ferli til muna og sparað því stórfé í markaðskostnað. - Firma- og vörumerki
Í gegnum tíðina hafa starfsmenn Tikktakk Hugbúnaðar hannað fjöldan allan af vöru- og firmamerkjum, hægt er að skoða sýnishorn verka með því að smella hérna - Auglýsingagerð
Við stærum okkur af því að vera auglýsingastofa minni fyrirtækja og bjóðum við hönnun auglýsinga á afskaplega viðráðanlegum verðum, hvort sem um ræðir fyrir prentmiðla, vefmiðla eða hönnun skilta og bílmerkinga.
Hafir þú áhuga á frekari kynningu, ekki hika við að hafa samband við okkur í gegnum netfang okkar tikktakk@tikktakk.is eða í síma 567 6605






