Venulegt útlit

Vefhýsingar

Tikktakk Hugbúnaður býður einstaklingum og fyrirtækjum fyrsta flokks vefhýsingu á Blade vefþjónum sem staðsettir eru á Íslandi í hita- og aðgangsstýrðum kerfisrýmum og öll öryggisskilyrði eru til fyrirmynda.

Allir viðskiptavinir fá aðgang að fullkomnu Plesk stjórnborði sem gerir viðskiptavinum kleift að stofna sjálfir undirlén og póstföng svo fátt sé nafnt.

Vefsíðuhýsing

Tikktakk Hugbúnaður setur öryggi og fagleg vinnubrögð framar öllu þegar kemur að hýsingum. Hjá okkur eru hundruðir vefja í hýsingu og fer viðskiptavinahópurinn ört stækkandi.

Við hýsum allar gerðir vefsíða og léna

  • Hýsum allar lénaendingar .is, .com, .net osfr.
  • ASP, ASP.net, PHP, Java2 EE. osfr.
  • Fullkomin vírus- og ruslpóstsía
  • Tengin við Google Gmail þjónustu

Þinn vefþjónn

Við hjá Tikktakk Hugbúani getum boðið þér að vera með þinn eigin PLESK vefþjón til að halda utan um þína viðskiptavini. Inni á PLESK eru fjöldinn allur að tilbúnum forritum til að setja upp á nokkrum mínútum.

Kerfishýsing og kerfisleiga

Það hentar ekki öllum fyrirtækjum að eiga og reka eigin netkerfi. Búnaðurinn er dýr og þarfnast reglulegrar endurnýjunar. Auk þessa þarf að uppfæra hugbúnað reglulega, bregðast við bilunum, vera með nýjustu vírusvörnina og svo mætti lengi telja. Þegar öllu er á botninn hvolft getur rekstur netkerfis tekið tíma og fjármuni frá fyrirtækinu sem væru betur nýttir í eitthvað annað.

Þá er hagkvæm lausn að nýta sér þjónustu Miðju.is. Net- og kerfisbúnaður er hýstur hjá fagmönnun sem eru á vakt allan sólarhringinn. Fyrirtæki tengjast búnaðinum í gegnum ljósleiðara eða ADSL, hafa engar áhyggjur af viðhaldi eða rekstri og geta notað plássið í eitthvað annað.

Kynntu þér málið hjá sölumönnum okkar. Þú sérð ekki eftir því!

Netfang: tikktakk@tikktakk.is




Preload