Venulegt útlit

Vefsíðugerð

Starfsmenn Tikktakk hugbúnaðar hafa starfað fyrir fjölda fyrirtækja og stofnana í gegnum tíðina og býður uppá heildarlausnir í þeim málum, hvort sem um ræðir þarfagreiningu, viðmótshönnun, útlitshönnun eða forritun.

Hjá okkur eru engir vefir eins og getur þú því tryggt það að þitt fyrirtæki muni vekja athygli og eftirtekt á netinu.

Við leggjum mikinn metnað í að bjóða viðskiptavinum okkar hraða og góða þjónustu, vönduð vinnibrögð og frábær verð.

Vefumsjónar- og vefverslunarkerfin okkar eru einstaklega notandavæn, auðvelt í notkun og að sjálfsgöðu á Íslensku. Allir okkar vefir eru einstaklega "Leitarvélavænir" og ætti því að vera auðvelt fyrir netverja að finna þá þjónustu eða vöru/r sem þitt fyrirtæki býður uppá.

Ferlinu okkar má skipta í 5 liði:

  • Þarfagreining

    Þarfagreining er greining á þörfum viðskiptavinar. Þannig eru markmiðin skilgreind í víðasta samhengi og vefstefna fyrirtækisins mótuð, s.s. markmið vefsvæðis, markhópar og tilgangur. Með góðri þarfagreiningu má bæði spara tíma starfsmanna og fjármuni fyrirtækja, ásamt því að auka tekjur þess til muna. Þarfagreining er mismikil eftir stærð vefsvæða.
  • Viðmótshönnun

    Farið er í alla liði viðmótshönnunar, s.s. staðsetningu á valmynd, framsetningu á efni, skipulag og hverslags útlit höfðar til áætlaðar markhóps.
  • Útlitshönnun

    Í samráði við verkkaupa verður unnin tillaga að nýju útliti vefsins, sem byggja mun á óskum verkkaupa og faglegum vinnubrögðum vefhönnuðar Tikktakk hugbúnaðar. Tillagan verður lögð fyrir verkkaupa og þróuð í samráði við hann þar til sátt ríkir um útlit vefsins.
  • Uppsetning

    Starfsmenn Tikktakk hugbúnaðar setja vefinn upp í Fuel CMS vefumsjónarkerfi eða Fuel Shop vefverslunarkerfi skv. samþykktu útliti og virkni.
  • Eftirfylgni og innleiðing

    Eftir að vefurinn hefur verið settur upp er farið yfir hann í samráði við fulltrúa verkkaupa og tryggð rétt birting og rétt virkni eigi sér stað.

Smelltu hérna til þess að skoða brot af þeim vefsíðum sem starfsmenn Tikktakk hugbúnaðar hafa gert í gegnum tíðina.

Hafir þú áhuga á frekari upplýsingum hvað vefsíðugerð varðar, ekki hika við að hafa samband við okkur í síma 512 8800 eða í gegnum netfang okkar tikktakk@tikktakk.is




Preload