Bluemountain ehf
Ferðaskrifstofan Blue Mountain var stofnað árið 2006 af hjónunum Sverri Þorsteini og Herdísi Jónsdóttur. Meginmarkmið fyrirtækisins var að koma til móts við þá ferðalanga erlenda sem innlenda sem vilja ferðast um Ísland á mótorhjólum. Sumarið 2007 ræðst Sverrir í það stórverkefni ásamt eldri bróður sínum, Einari Þorsteinssyni að ferðast á mótorhjóli kringum hnöttinn frá vestri til austurs og var því starfsemin litil það sumarið. Sumarið 2008 fengum við ferðaskrifstofuleyfi og komu fyrstu erlendu gestrirnir til okkar það sumar og voru farnar nokkrar ferðir sem tókust það vel til að ákveðið var að taka næsta skref með fyrirtækið og útvikka starfssemina enn frekar með útleigu á mótorhjólum. Vorið 2009 bættust í eigendahópinn, hjónin Haukur Þorsteinsson og Theodóra Björk Heimisdóttir og þar sem þau hafa lengst af tengst motocrossi og endurohjólum þá útvikkuðum við starfsemina enn frekar og ásamt því að bjóða uppá margar spennandi ferðir á touring hjólum þá var ákveðið að bjóða líka uppá enduroferðir, kennslu á motocrosshjólum , útleigu á mótorhjólum og vespum ofl.









