BookON Bókunarvélin

Hingað til hafa bókunarvélar verið dýrar og erfitt hefur verið fyrir litla gististaði að nýta sér þennan auðvelda möguleika að bjóða uppá bókanir beint í gegnum netið. Bókunarvélin frá TikkTakk hugbúnaði er í senn einföld og ódýr lausn fyrir gististaði á Íslandi. Hingað til hefur það verið óhugsandi fyrir aðra en allra stærstu ferðaþjónustuaðila að bjóða upp á að bóka beint á netinu þar sem mánaðarlegar greiðslur fyrir örugg vefsvæði eru svo háar.
Tikktakk Hugbúnaður býður nú eigendum gististaða að taka bókunarvélina í notkun og hægt er að velja á milli tveggja leiða.
Leið 1 - 10% þóknun:
Skráning gististaðar í bókunarvélina þar sem allar upplýsingar eru settar inn, aðgangur að bókunarvélinni ásamt bókunarglugga inná heimasíðu gististaðarins. Tekin er 10% þóknun af hverri bókun sem berst í gegnum vefinn (allir gististaðir byrja með 10% þóknun*, hægt verður að endurskoða þessa prósentu til lækkunar ef mikið er bókað í gegnum netið). Gististaðurinn sér svo um að innheimta eftirstöðvar bókunarinnar þegar viðkomandi gestur mætir á svæðið.
* Á ekki við um hótel og stærri gististaði, hægt er að semja við okkur um úthlutun herbergja í bókunarvélinni og þá prósentu sem tekin er í þóknun.
Innifalið í skráningu bókunarvélar er eftirfarandi:
- Uppsetning og skráning upplýsinga í stjórnborð bókunarvélarinnar.
- Kennsla á stjórnborðið fyrir þá sem hafa yfirumsjón með viðkomandi gististað.
- Auka eining, Receptions booking, sem gerir umsjónarmanni mögulegt að skrá inn bókanir beint í kerfið og nýta það sem heildarbókunarkerfi fyrir gististaðinn.
- Uppsetning á glugga á heimasíðu viðkomandi gististaðar þar sem hægt er að leita beint að lausu herbergi (sjá t.d. hérna).
Alls kr. 59.900 án vsk.
Leið 2 - front end license:
Skráning gististaðar í bókunarvélina þar sem allar upplýsingar eru settar inn, aðgangur að bókunarvélinni ásamt bókunarglugga inná heimasíðu gististaðarins. Allar bókanir sem berast í gegnum vefinn þinn renna beint á þinn reikning (miðast við uppsetningu á netgreiðslum hjá Kortaþjónustunni, Borgun eða Valitor*).
* Þjónustusamningur við viðkomandi netgreiðsluaðila er ekki innifalið í verðum okkar.
Innifalið í skráningu bókunarvélar er eftirfarandi:
- Svokallað front end license sem tengir þína greiðslugátt við bókunarvélina þína.
- Uppsetning og skráning upplýsinga í stjórnborð bókunarvélarinnar.
- Kennsla á stjórnborðið fyrir þá sem hafa yfirumsjón með viðkomandi gististað.
- Auka eining, Receptions booking, sem gerir umsjónarmanni mögulegt að skrá inn bókanir beint í kerfið og nýta það sem heildarbókunarkerfi fyrir gististaðinn.
- Uppsetning á glugga á heimasíðu viðkomandi gististaðar þar sem hægt er að leita beint að lausu herbergi (sjá t.d. hérna).
Alls kr. 159.900 án vsk.
Mánaðargjald kr. 2.590 án vsk.
Skjáskot af stjórnborði
|
|
|
|
Ef þinn gististaður er ekki með heimasíðu þá getum við auðveldlega komið til móts við þig. Bókunarvélin útbýr sérstakt vefsnið sem getur nýst sem heimasíða. Gistiheimilið Lyngholt hefur t.d. nýtt sér þennan möguleika, sjá á www.lyngholt.is. Með því að setja upp heimasíðu fyrir þinn gististað verður þú sýnilegri á internetinu.
Mánaðargjald fyrir vefhýsingu er kr. 1.990 m/vsk.
Auk þess rekur Tikktakk Hugbúnaður vefsíðuna www.portal.is þar sem hægt er að finna alla þá gististaði sem nota bókunarvélina, unnið er að því að skrá inn gististaði á öllu landinu til að gera síðuna sem aðgengilegasta fyrir ferðamenn sem vilja bóka sér gistingu hringinn í kringum landið. Unnið er að miklu kynningarátaki á þessari vefsíðu til að ferðamenn, innlendir sem erlendir muni nota þessa vefsíðu þegar kemur að því að leita sér að gististað á Íslandi.
Ef þú hefur áhuga á að kynna þér málið betur þá vinsamlegast hafðu samband í síma 512 8800 eða á netfangið tikktakk@tikktakk.is
Hér eru nokkrir af þeim gististöðum sem nota bókunarvélina okkar (notkun er mismunandi eftir gististöðum):
Hótel Selfoss, www.selfosshotel.is
Fosstún íbúðahótel, www.fosstun.is
Gistihúsið Lúdent, www.ludent.is
Hótel Höfðabrekka, www.hofdabrekka.is
Ferðaþjónustan Skorradal, www.indridastadir.is
Ásgarður, www.asgardurinn.is
Hótel Hekla, www.hotelhekla.is
Álaborg apartments, www.alaborg.is
Gistihúsið Hvanneyri, www.hvanneyri.com
Gistiheimilið Lyngholt, www.lyngholt.is










