Venulegt útlit

Kannanakerfi

Tikktakk Hugbúnaður hefur tekið í notkun öflugt kannanakerfi og mun bjóða viðskiptavinum sínum uppá gerð rafrænna kannana. Rafrænar kannanir eru skilvirkar og fjárhagslega hagkvæmar þegar kemur að því að kanna hug starfsmanna, viðskiptavina eða félagsmanna svo eitthvað sé nefnt.

Niðurstöður úr könnunum er hægt að fá á sniðum eins og PDF, Word, Excel eða sent í tölvupósti.

Tryggt er að öll svör séu órekjanleg og að farið sé eftir reglum Persónuverndar um öflun og meðferð persónuupplýsinga.

Helstu kostir kannanakerfisins

  • Sendir könnun út í tölvupósti til fyrirfram ákveðinna netfanga.
  • Sendir áminningu á þá sem ekki hafa tekið þátt í könnuninni eftir ákveðinn tíma sem tryggir að svörun í könnuninni verður ávallt góð.
  • Hægt er að búa til könnun þar sem notendur þurfa að skrá sig inn með notandanafni og lykilorði, sem er úthlutað í tölvupósti til þeirra.
  • Könnun er tengjanleg við domain vefþjóna þannig að aðeins ákveðnir aðilar innan fyrirtækis/stofnunar geta tekið þátt.
  • Skiptir stórum könnunum niður í mismunandi Excel skjöl og útflutningur yfir í SPSS snið ef þess er óskað.
  • Útbýr sérsniðnar skýrslur.
  • Birtir niðurstöður í kökuritum, línuritum og stöplaritum.
  • Leit eftir ákveðnum svörum við einni sérstakri spurningu möguleg.
  • Ákveðnar byrjunardagsetningar og endadagsetningar eru stillanlegar og geta/verða þátttakendur að svara könnun innan tiltekins tíma.
  • Takmörkun á fjölda svara frá hverjum notanda möguleg.
  • O.fl. o.fl.

Það eina sem viðskiptavinir okkar þurfa að gera er að útbúa spurningar, möguleg svör og netfangalista.

Starfsmenn Tikktakk Hugbúnaðar sjá svo um að setja könnunina upp, safna svörum, vinna úr þeim og birta niðurstöður.




Preload