Sense360 vefstjórinn

Sense360 Vefstjórinn er fullkomið vefumsjónar- og vefverslunarkerfi sem hentar fyrirtækjum og stofnunum að öllum stærðum og gerðum.

Óska eftir tilboði

Af hverju ætti ég að velja Sense360 Vefstjórann ?

Sense360 Vefstjórinn er fullkomið vefumsjónar- og vefverslunarkerfi sem hentar fyrirtækjum og stofnunum að öllum stærðum og gerðum. 

Einstaklega auðvelt er að sérsníða kerfið að þörfum fyrirtækisins og er rekstarkostnaður með því lægsta sem völ er á. Vefumsjónarkerfið er allt á Íslensku ein einnig til á Ensku og er einstaklega auðvelt að læra á. Kerfið notast við allra nýjustu tækni og er í stöðugri þróun.

Skjáskot úr Sense360 Vefumsjónarkerfinu


Helstu eiginleikar

  • Lægri rekstarkostnaður

    Mjög algengt er að fyrirtæki á Íslandi greiði á bilinu 15 til 50.000,- krónur í rekstarkostnað fyrir sína vefi. Allir viðskiptavinir okkar greiða einungis 5.990,- á mánuði með öllum einingum og vefhýsingu. Enginn falinn kostnaður!.
  • Fréttakerfi

    Það er nánast undantekningalaust að fyrirtæki á Íslandi birta fréttir reglulega á sínum vefjum. Einstaklega auðvelt er að setja inn fréttir og greinar í gegnum Sense360 vefumsjónarkerfið.
  • Eyðublaðasmiður

    Með einstaklega auðveldu móti er hægt að setja inn og smíða eyðublöð hvar sem er á vefinn. Hvort sem um ræðir fyrir fyrirspurnir, skráningar eða í raun hvað sem er. Öll eyðublöð eru tengd einstaklega fullkomri ruslpóstvörn.
  • Tölfræði vefseturs

    Fullkomin tölfræðihugbúnaður gerir það að verkum að auðvelt er að sjá heimsóknarfjölda á vefsvæði, hvort sem um ræðir gesti sem koma ítrekað aftur eða þá sem eru að heimsækja vefinn í fyrsta skiptið.
  • Leitarvélavænt

    Sense360 er einstaklega leitarvélavænt sem gerir það að verkum að auðvelt er fyrir leitarvélar eins og Google, Yahoo osfr. að finna efni á vefnum. Allar vefslóðir eru einnig leitarvélavænar s.s. "/frettir" í stað "/index.php?s=frettir&id=20"
  • Atburðadagatal

    Einstaklega auðvelt er að flokka, birta og skrá atburði í atburðakerfið. Netverjar geta svo smellt á tilteknar dagsetningar og séð þá atburði sem eiga sér stað þann dag.
  • Myndbandakerfi

    Auðvelt er að hlaða inn og birta myndbönd á vefnum af öllum tegundum, einnig styður kerfið að birta myndbönd beint frá youTube.
  • Skjalakerfi

    Skjalakerfið er mjög fullkomið og getur tekið á móti og geymt allar tegundir skjala, hvort sem um ræðir myndir, pdf skjöl, excel eða annað. Hægt er að hlaða mörgum skjölum inn í einu og birta síðan beint á vefnum.
  • Stuðningur við vafra

    Sense360 styður allar tegundir stýrikerfa og vafra. Þar má einna helst nefna Windows og Macintosh tölvur og vafra á borð við Internet Explorer, Firefox og Safari.
  • Notandaumsjón

    Auðvelt er að bæta við, eyða og/eða breyta notendum í Sense360 vefumsjónarkerfinu. Hver notandi hefur sitt aðgangsorð og lykilorð að kerfinu. Einnig er hægt að læsa fyrir eða opna ákveðin svæði fyrir hvern notanda.
  • Öryggismál

    Í Sense360 er skráningarkerfi fyrir notendur, sem gerir það að verkum að vefstjórar geta læst ákveðnum svæðum vefsins fyrir aðeins skráða notendur eða láta notendur skrá sig svo hægt sé að skoða ákveðna síðu eða efni.
  • RSS straumar

    Einstaklega auðvelt er að setja inn RSS strauma og birta efni frá ákveðnum efnisveitum, s.s. nýjustu fréttir á mbl.is eða innlendar fréttir af vísir.is
  • Myndaalbúm

    Hægt er að búa til og staðsetja myndaalbúm hvar sem er á vefnum, á sér síðu, undir fréttagreinum osfr. Hægt er að hlaða inn mörgum myndum inn í einu og setja í flokka.
  • Leitarvél

    Aðgengi notanda að efni, þjónustu eða vöru er mikilvægt. Hægt er að setja inn leitarvél hvar sem er á vefnum sem leitar að efni á ákveðnum síðum eða á öllum vefnum.
  • Vefhýsing

    Öll fyrirtæki sem nýta sér Sense360 fá vefhýsingu innifalda með 500mb gagnaplássi, 20 netföngum aðgang að vefpóst með fullkomri vírus- og ruslpóstsíu.
  • Sérsniðnar einingar

    Ef að þú sérð ekki það sem þitt fyrirtæki vantar hér í þessum lista þá einfaldlega sérsmíðum við þá einingu. Hafðu samband við sölufulltrúa strax í dag og fáðu fast verðtilboð.
  • Vörulisti / Vörukerfi

    Auðvelt er að búa til vöruflokka og birta vörur með mynd, verði og vörulýsingu. Hægt er að leita að vörum með fullkomri leitarvél sem bæði leitar í lýsingu vöru ásamt titli.
  • Hugbúnaðarþróun

    Tikktakk hugbúnaður er sífellt að þróa og bæta Sense360, allir viðskiptavinir fá uppfærslur að kerfum frítt og án alls aukakostnaðar. Það sama má seigja um nýjar einingar, allar einingar eru innifaldar og geta fyrirtæki sjálf ákveðið hvaða einingar skal nota og hverjar ekki.

vafrar.png

  • Auðvelt í notkun
  • Fullkomið og öflugt
  • Mikill sveigjanleiki
  • Öruggt kerfi
  • Tíðar uppfærslur
  • Fríar uppfærslur

Ég óska eftir frekari upplýsingum, vinsamlegast hafið samband!

Nafn *

Sími *

Netfang *

Hentar best *
 
 
 


 




Vefbókanir fyrir bílaleigur

Öflugt bókunarkerfi
fyrir bílaleigur.

Hafðu samband fyrir
frekari upplýsingar.

Vefbókanir fyrir leigumiðlanir

Öflugt bókunarkerfi og
vefumsjónarkerfi.

Frá aðeins: 389.000,-

Skoða nánar

Vefþulan

Vefþulan er í boði sem vefþjónusta fyrir þau fyrirtæki og stofnanir sem láta aðgengismál sig einhverju skipta.

Skoða nánar